Tuesday, October 26, 2010

Fyrsti í bloggi; Berlín.

Jæja! Bloggið loksins komið af stað.. ætli ég byrji ekki alveg á byrjun ferðalagsins og lýsi fyrir ykkur Berlínarferðinni.




Allavega..
Við lentum í Berlín og tókum strassebahn (ofanjarðarlest) og svo kvöldstrætó með allan farangurinn sem við áttum eftir að bölva mikið það sem eftir lifði ferðar. Við fundum hostelið sem er staðsett í einu af “arty” hverfum Berlínar, Kreuzberg en þar má finna fjöldann allan af námsmönnum, innflytjendum (tyrkjum, indverjum og svo þeim sem reyktu mikið gras í almenningsgörðunum þegar rökkva tók..). Einnig voru veitingastaðir, pöbbar, bakarí og spätkauf (litlar sjoppur sem opnar eru næstum allan sólahringinn og selja áfengi, nammi og fleira í þeim dúr) á hverju horni. Eftir að við fórum um önnur hverfi borgarinnar komumst við þó að því að í flestum þeirra (sem eru miðsvæðis) er sömu lýsingu að finna, fyrir utan kannski fjölda innflytjenda. Við gistum 3 nætur á hostelinu sem var svona lala..virkilega ljótt herbergi sem við fengum en það svosem þjónaði sínum tilgangi, ágætisrúm og sameiginlegu sturturnar voru mjög fínar.




Síðustu 2 næturnar gistum við í Friedrichshain, hverfi sem er staðsett rétt hinum megin við ána (og múrinn) við Kreuzberg. Á milli þessara hverfa er á sem skilur þau að og einnig lengstu leifar múrsins sem er nú búið að breyta í eins konar lista”safn” – East side gallery þar sem um hundrað listamenn frá svipað mörgum löndum fengu sitt svæði á veggnum til þess að tjá list sína. Nokkuð gaman að skoða það og mörg listaverkin mjög flott.




Í Berlín löbbuðum við heilan helling og skoðuðum helstu túristastaðina auk þess sem við kíktum í margar second-hand búðir ásamt nokkrum vinsælum fatabúðum. Veðrið var yndislegt sem gerði stemninguna í Berlín einstaka, við vorum mjög heppin þar sem það hafði verið hellidemba vikuna áður. Hefði verið aðeins leiðinlegra að túristast í grenjandi rigningu..




Söfnin og helstu túristastaðirnir ollu okkur nokkrum vonbrigðum en við fórum í DDR safnið, Checkpoint Charlie, Gyðingasafnið, skoðuðum Brandenburgarhliðið og Potsdamer Platz. Flest söfnin voru heldur þurr, við urðum allavega ekki fyrir mikilli hrifningu..
Í Friedrichshain gistum við hjá Vanessu, þýskri vinkonu minni sem var að kenna þýsku við HÍ þegar ég tók þar einn kúrs. Hverfið hennar var mjög líflegt og skemmtilegt. Við fórum og hittum vini hennar eitt kvöldið og stútuðum ansi mörgum 3,5 evra kokteilum hjá Mustafa, félaga þeirra og eiganda indverska veitingastaðarins rétt hjá lestarstöðinni.




Borgin er mjög lífleg og það skiptir ekki máli á hvaða tíma maður röltir um, það eru alltaf margir á ferli. Sagan er nýtt vel, útúm allt eru túristastaðir helgaðir múrnum og skiptingunni í austur og vestur. Fílíngurinn er sérstakur, það er einhvern veginn alltaf stemning í Berlín..alltaf eitthvað um að vera. Veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því en hún er mjög ólík hinni rólegu Vín.




Við vöknuðum eldsnemma morguninn sem við áttum bókað flug til Vínar. Löbbuðum að lestarstöðinni með töskufjölskylduna sem hafði lést eitthvað smá eftir að við sendum nokkra pakka yfir til Vínar. Fyrir ykkur forvitnu (ég veit þið eruð nokkrar þarna innritunarpíur sem hafa gaman af svona upplýsingum) þá mætti ég til Berlínar með 29 kílóa ferðatösku, 10 kg stóran túristabakpoka á öxlunum, tölvutösku og svo litla handfarangurstösku. Þar sem við notuðumst bara við almenningssamgöngur vorum við ógeðslega þreytt á töskunum og stundum réð ég ekkert við þetta (sérstaklega þar sem það er verulegur skortur á lyftum í Berlín og hótelherbergið okkar var á 4.hæð og á mörgum stöðum voru engar lyftur á lestarstöðvunum). Þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hamingjuna þegar góði innritunargaurinn frá Air Berlín tók allar töskurnar og innritaði okkur með bros á vör án þess að segja neitt við þessum 12 aukakílóum sem við vorum með (og já, ég var líka búin að kaupa auka 10 kíló áður, þegar við pöntuðum miðana þannig að við vorum með auka 22 kíló alls....)

Flugið var gott og stutt og við vorum glöð að sjá Evu (íslenska daman sem er að leigja okkur íbúðina) sem tók á móti okkur á flugvellinum og fór með okkur “heim”.

Framhald síðar... 


p.s. ég vildi drífa þessa síðu af stað, nenni ekki að fikta í útlitinu að svo stöddu.
p.s.2 - fleiri myndir á facebook

6 comments:

  1. kvittikvitt:)
    Elska Berlín, hún er svo flott..

    Sólveig

    ReplyDelete
  2. Ekki fagmannlegt...pfff! Fagmannlegra blogg hef ég ekki litið augum. Hnittin og greinagóð frásögn ásamt vel unnu myndefni. Hafðu það sem allra best Vínarvalgó! Endilega haltu áfram þessu bloggeríi:)

    Kv. Harpa þegar ég segi poli segið þið tíka!

    ReplyDelete
  3. Ánægð með þig, alltaf gaman að fylgjast með ævintýrum ;)

    Kv. Helga Dagný

    ReplyDelete
  4. Mér finnst nafnið VínarValgs alveg hreint frábært! :) Gaman að lesa þetta kæra stalla, mjög skemmtilegur penni ;) Ég fylgist spennt með!
    P.S. Ég hafði mjöööög gaman af uppl. um farangurinn haha High five á Air Berlin gaurinn sem rukkaði ekki

    -Irmý Ósk

    ReplyDelete
  5. Edda Rós SkúladóttirOctober 27, 2010 at 8:20 PM

    Það hlaut að koma að því Valka mín! Hlakka til að lesa :)

    ReplyDelete
  6. hahaha Harpa, þú veist að þetta er bannað!

    þið hinar... ég reyni að vera dugleg hérna :)

    - Valgerður

    ReplyDelete